Opið bréf til fjármála- og efnahagsráðherra

Opið bréf til fjármála- og efnahagsráðherra frá bæjarstjórn Vestmannaeyja

Ágæta Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Þann 2. febrúar s.l. var undirrituð fyrir þína hönd krafa um að Vestmannaeyjabær afhendi ríkinu stóran hluta Heimaeyjar og allar úteyjar og sker sem sameiginlega mynda það sem heitir Vestmannaeyjar. Þessi krafa hefur þó enn ekki verið send okkur Eyjamönnum heldur benti góðviljaður lögmaður okkur á að hún hefði birst á heimasíðu Óbyggðanefndar. Þessa nefnd hafa Eyjamenn hingað til látið afskiptalausa, og hún okkur, enda fremur langsótt að telja 13 ferkílómetra eyju með 4,600 íbúum til óbyggða; jafnvel þótt úteyjarnar séu taldar með enda eru þær flestar byggðar reisulegum veiðihúsum.

Með langri sögulegri upprifjun á 35 blaðsíðum, sem nær allt frá Landnámu Ara fróða á 12. öld, kemst lögmaður Óbyggðanefndar fyrir þína hönd að þeirri niðurstöðu að ríkið eigi að heimta af Vestmannaeyjabæ í fyrsta lagi allar úteyjar og sker – og á Heimaey sjálfri m.a. fjöll á borð við Heimaklett og Blátind. Einnig vill ríkið eignast allar hlíðar Herjólfsdals – þ.m.t. brekkuna sem Brekkusöngurinn á Þjóðhátíð er kenndur við. Dalbotninn sjálfan mega Eyjamenn þó náðarsamlegast eiga áfram. Einnig vill ríkið eigna sér sem þjóðlendu allt Eldfell og allt nýja hraunið sem myndaðist í gosinu 1973. Virðist þá gilda einu að þar sé búið að leggja vegi, skipuleggja og úthluta lóðum til atvinnurekstrar og miklar framkvæmdir þegar hafnar, m.a. við landeldi á laxi.

Hér er fátt eitt upp talið af því sem ríkið vill nú sölsa undir sig í Vestmannaeyjum – sem er þeim mun undarlegra þegar haft er í huga að sama ríki afsalaði til Vestmannaeyjabæjar öllu þessu landi á grundvelli sérstakrar lagasetningar þar um 1960, fyrir 63 árum.
Við ætlum hins vegar ekki í þessu bréfi að efna til lagaþrætu um málið. Það gerist stundum að þrengsta túlkun á tilteknum lagagreinum fer út fyrir landamæri almennrar og heilbrigðrar skynsemi. Frægt dæmi er þegar til stóð fyrir nokkrum áratugum að skattleggja þá aura sem blaðburðarbörn unnu sér inn. Þáverandi forsætisráðherra beitti heilbrigðri skynsemi og sagði sem frægt varð: ‘’Svona gera menn ekki’’ – og málið var dautt.

Núna förum við þess á leit við þig, hæstvirtur ráðherra, að þú beitir sambærilegri skynsemi í þessu máli og látir draga umrædda kröfu, sem gerð er í þínu nafni, til baka.

Það hefur aldrei komið upp sá ágreiningur, álitamál eða vafamál um eignarhald á landi í Vestmannaeyjum að það kalli á inngrip ríkisins af þessu tagi. Um þessi mál ríkir fullkomin og vandræðalaus sátt og samlyndi allra aðila og furðulegt að ríkisvaldið sé nú með ærnum tilkostnaði að efna til ófriðar þar sem enginn ágreiningur er fyrir. Fjármunum og kröftum ríkisins er væntanlega betur varið þessa dagana í annað en tilraunir til að sölsa undir sig land í Vestmannaeyjum.

Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?

Með vinsemd og virðingu

Páll Magnússon
Njáll Ragnarsson
Eyþór Harðarson
Íris Róbertsdóttir
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Helga Jóhanna Harðardóttir
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Margrét Rós Ingólfsdóttir
Gísli Stefánsson

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.