FÍV er stofnun ársins  2023

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum  hlaut í gær viðurkenningu í könnun Sameykis um stofnun ársins 2023. FÍV er fyrirmyndarstofnun og er í fyrsta sæti  í flokki minni stofnanna.

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur síðastliðinn áratug verið með þeim efstu í þessari könnun og þetta er í þriðja sinn sem skólinn fær viðurkenningua „Stofnun ársins“. Við í FÍV erum virkilega stolt yfir þessari niðurstöðu.

Thelma B. Gísladóttir aðstoðarskólameistari og Elísabeth Ruth Guðmundsdóttir forstöðumaður bókasafn FÍV veittu viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn hjá Sameyki.

Titlana Stofnun ársins, hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnun Sameykis byggir á að mati starfsmanna þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar um styrkleika og áskoranir í starfsumhverfi stofnana, starfsfólki til hagsbóta.

Á hverju ári tekur allt starfsfólk skólans, óháð félagsaðild, þátt í könnuninni sem fer þannig fram að spurningalisti er lagður fyrir starfsfólk á netinu. Mælingin nær yfir níu ólíka þætti og þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi stofnana. Þeir níu þættir sem eru mældir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt og jafnrétti.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.