Sjómenn samþykktu kjarasamninginn

Atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem undirritaður var þann 6. febrúar síðastliðinn lauk kl. 15:00 í dag. Á kjörskrá voru 1104 og greiddu 592 atkvæði um samninginn eða 53,62%. Niðurstaðan er að af þeim sem kusu sögðu 367 já eða 61,99%, 217 sögðu nei  eða 36,66% og auðir og ógildir seðlar voru 8 eða 1,35%. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 62,84% já og 37,16% sögðu nei.  Samningurinn var því samþykktur.

„Núna eru sjó­menn inn­an SSÍ komn­ir með al­vöru kjara­samn­ing eft­ir erfiða fæðingu. Sá samn­ing­ur sem felld­ur var fyr­ir ári síðan er grunn­ur­inn að þess­um nýja samn­ingi. Við bætt­um við og lag­færðum það sem sjó­menn gagn­rýndu hvað mest í þeim samn­ingi. Ég er stolt­ur af mín­um fé­lags­mönn­um inn­an Sjó­manna­sam­bands­ins að samþykkja samn­ing­inn,“ seg­ir Val­mund­ur Val­mund­ar­son, formaður Sjó­manna­sam­bands Íslands í samtali við mbl.is.

„Loks­ins er gert upp úr 100% afla­verðmæti. Loks­ins geta sjó­menn sagt að þeirra hlut­ur í ol­íu­kostnaði sé í burtu. Nú geta sjó­menn sótt hækk­un beint á skipta­pró­sentu ef þurfa þykir með grein 1.39.1. Loks­ins koma hækk­an­ir á kaup­trygg­ingu og kaupliðum eins og ger­ist á al­menna markaðnum. Loks­ins fá sjó­menn des­em­ber upp­bót árið 2028,“ seg­ir enn­frem­ur á mbl.is.

Mynd: Valmundur í ræðustól á Sjómannadaginn í Vestmannaeyjum.

 

Nýjustu fréttir

Glódísi Dúnu hlakkar til að hefja nýjan kafla
Fiskaðist vel yfir nóttina
Eigi veldur sá er varar
Hvað gæti ESB gert fyrir Vestmannaeyjar?
Yfirráð Íslands yfir eigin sjávarauðlind
Eyjakonur sækja Grindavík/Njarðvík heim
Ný almannavarnalögn gjörbreytir öryggi Vestmannaeyja
Makrílvertíðin að hefjast
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.