Í tilefni af sumardeginum fyrsta býður Vestmannaeyjabær bæjarbúum frítt í sundlaugina og frítt í Eldheima og Sagnheima.
Opið í Einarsstofu og í Sagnheimum frá kl. 12:00-15:00 og í Eldheimum frá kl. 13:00-16:30. Sundlaugin er opin frá kl. 9:00-17:00.
Við viljum einnig vekja athygli á að nóg er um að vera í íþróttalífinu þennan dag. Meistarflokkur karla í fótbolta spilar bikarleik við Grindavík kl. 14:00 og Meistaraflokkur karla í handboltanum tekur á móti FH í öðrum leik í undanúrslitum og hefst sá leikur kl. 17:00 og hvetjum við bæjarbúa til að fjölmenna á þessa leiki.
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi