Þar sem Herjólfur þarf að fara í slipp næsta þriðjudag, mun m.s. Selfoss flytja vörur til Eyja næsta fimmtudag. Varan þarf að koma inn á afgreiðslu Eimskips fyrir klukkan 16:00 n.k. miðvikudag 5. desember. Selfoss verður síðan í Vestmannaeyjum n.k. fimmtudagsmorgun 6. desember. Í næstu viku er ráðgert að Herjólfur fari í slipp í tvo sólahringa í nauðsynlegt viðhald vegna bilaðrar pakkningar við skrúfuás.