Er í einu besta liði Evrópu

Margrét Lára Viðarsdóttir hefur ekki ákveðið hvar hún muni spila sumarið 2008 en það dylst engum að það eru mörg stór erlend lið á eftir bestu knattspyrnukonu landsins.

Daginn eftir að hún var kosin knattspyrnukona ársins annað árið í röð flaug hún til Indianapolis í Bandaríkjunum þar sem hún keppist um að vinna sér sæti hjá bandaríska liðinu FC Indiana sem er eitt að liðunum sem koma til með að mynda nýja bandaríska atvinnumannadeild árið 2009. FC Indiana vann bandarísku úrvalsdeildina í ár og hefur verið eitt af bestu liðum hennar undanfarin tímabil.

„Það eru flottir hlutir í spilunum hjá mér. Ég er að fara til Ameríku og ætla að fara að skoða þar lið sem heitir Indiana og er frá Indianapolis sem er rétt hjá Chicago. Þetta virðist vera sterkt lið sem ætlar sér mikið í nýju atvinnumannadeildinni. Þeir eru að taka inn leikmenn til þess að skoða fyrir 2009. Þeir skoða sjö leikmenn frá Evrópu og velja fjóra þar út sem komast inn í liðið á næsta ári,” segir Margrét Lára sem getur vel hugsað sér að spila í Bandaríkjunum takist henni vel upp.

„Þetta er mikið tækifæri fyrir mig og það verður gaman að skoða aðstæðurnar þarna úti. Það væri frábært að komast að hjá þessu liði og það er gaman að fá að skoða þetta þarna í Bandaríkjunum en maður rennur nokkuð blint í sjóinn. Maður þekkir Norðurlöndin og þekkir Þýskaland og það er því gaman að sjá hvað þeir séu að spá og hvernig framtíðin verður þarna úti í Bandaríkjunum,” segir Margrét Lára.
Margrét Lára hefur einnig skoðað aðstæður í Svíþjóð.

„Ég ætla að byrja á því að skoða Bandaríkin, svo er Svíþjóð ennþá inni í myndinni og svo má ekki gleyma því að ég er í einu besta liðinu í Evrópu og ég fer ekki frá Val nema það sé eitthvað virkilega gott í boði. Ég hef verið mikið að skoða Djurgården en ég vil fara í sterkt lið þar sem ég þarf virkilega að hafa fyrir hlutunum,” segir Margrét Lára sem vill ekki nefna fleiri sænsk lið en það margir sem myndu bíða spenntir eftir að sjá hana spila við hlið Viktoriu Svensson sem hefur verið aðalsóknarmaður sænska landsliðsins undanfarin ár.

Margrét Lára skoraði 77 mörk á árinu 2007, þar af 8 þeirra með íslenska A-landsliðinu. Það er ljóst á öllu að Valsliðið hefur enn mikið að bjóða fyrir Margréti Láru sem hefur skorað 182 mörk í 89 mótsleikjum með Val sem hún gekk til liðs við fyrir sumarið 2005.

„Umgjörðin og metnaðurinn í þjálfun er gríðarlega mikill í Val og það er frábært tækifæri að fá að spila með Val. Mín þrjú ár í Val hafa verið frábær og ég sé ekki eftir því að hafa spilað fyrir þann klúbb. Þetta er frábær klúbbur, með gott þjálfarateymi sem leggur mikið upp úr því að ná árangri. Það er það umhverfi sem ég er að leitast eftir. Það skiptir mig miklu máli að maður sé að læra á hverri æfingu,” segir Margrét Lára.
Margrét Lára segist hafa brennt sig á því að fara til MSV Duisburg í Þýskalandi en annars segir hún sig vera komna lengra í boltanum en hún bjóst við fyrir nokkrum árum.

„Ég myndi segja að ég væri komin framar en ég bjóst við. Ég stefndi í fyrsta lagi aldrei á A-landsliðið fyrr en ég yrði 18 eða 19 ára og það gerðist þegar ég var sextán ára. Ferillinn hefur verið mjög flottur og ég hef tekið stór skref. Það er mjög mikilvægt að halda sér niðri á jörðinni ef maður ætlar að ná árangri. Maður má ekki vera upp í skýjunum heldur finna sér nýtt verkefni og nýtt markmið og finna þá hluti hjá sér þar sem maður getur bætt sig,” segir Margrét Lára, en hversu miklar líkur eru á að hún velji Bandaríkin?

„Það gæti verið rétt leið fyrir mig að fara til Ameríku. Þegar ég fór til Þýskalands þá steig ég rangt skref sem ég lærði rosalega mikið af og gerði mig að betri knattspyrnukonu fyrir vikið. Næsta skref vil ég að verði gott skref, í góða átt, að árangri einhvers staðar annars staðar,” segir Margrét Lára og nú er að sjá hvort hún komist að hjá einu heitasta liðinu í Bandaríkjunum.

 

Nýjustu fréttir

Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Emil Gautason í lokahóp u-16
900 krónur urðu að 45 milljónum!
Vara við snjóhengjum og grýlukertum
Staðan í Viðlagafjöru þremur árum eftir fyrstu skóflustungu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.