Ég hafði orð á þessu við nokkrar þeirra og konurnar voru sammála um að verslunin Flamingo í Eyjum byði upp á svo vönduð og flott föt að það hvetti konurnar til að vera flottar í tauinu. Það var ekki síður skemmtilegt að ræða við konurnar í smærri hópum um lífið og tilveruna þegar leið á kvöldið. Verulega gefandi. Takk fyrir kvöldið, kæru konur.