Stærsti segldúkur landsins fór upp í fárviðri

„Okkur leist nú ekkert á þetta þar sem veðurspáin var skelfileg,” segir Jón Viðar starfsmaður Frank og Jóa sem hafði yfirumsjón með uppsetningu á stærsta segldúki landsins í nótt.

Það er nýja samskiptafyrirtækið Nova sem ber ábyrgð á segldúknum sem þekur framhlið nýrra höfuðstöðva fyrirtækisins að Lágmúla 9 í Reykjavík.

„Okkur var skammtaður tími þar sem við gátum ekki byrjað fyrr en fólk var farið að sofa og þetta átti að vera tilbúið þegar fólk vaknaði í morgun,” segir Jón Viðar greinilega stoltur af verki næturinnar.

Segldúkurinn er úr svokölluðu Mesh efni sem virkar þannig að vindur kemst í gegnum efnið. Dúkurinn sjálfur er sá lang stærsti sem hefur verið settur upp hér á landi, 615 fermetrar. Það var fyrirtækið Frank og Jói sem sá um að prenta dúkinn en prentunin tók tvo sólarhringa.

„Við ákváðum að vaða í þetta og undirbjuggum okkur gríðarlega vel alla vikuna. Þetta virkaði síðan bara eins og púsluspil en við vorum með þrjár vinnulyftur og 8 menn sem komu þessu saman.”

Jón viðar segir menn hafa verið dauðþreytta eftir nóttina en það hafi verið vel þess virði enda öllum fundist verkefnið spennandi. „Þetta er auðvitað einstakt hér á landi og keppnisskapið var í lagi hjá mönnum. Aðstæður voru slæmar en við vorum samt á undan áætlun.”

 

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.