Framtíðin er skínandi björt miðað við þann árangur sem yngri flokkarnir eru að sýna.
Created by PhotoWatermark Professional
Created by PhotoWatermark Professional

Í dag birtum við fyrstu leikmannakynninguna á leikmönnum ÍBV í körfubolta. Körfuboltinn í eyjum hefur verið á miklu skriði að undanförnu og birtum við í dag viðtal við einn af þeim leikmönnum sem hafa hvað lengst spilað fyrir ÍBV. Kristinn Þór Jóhannesson eða Diddi Jordan eins og hann er kallaður í körfunni svarar spurningum eyjar.net að þessu þinni.Fullt nafn:
Kristinn Þór Jóhannesson

Fæðingarár -og staður: 
1978 á Selfossi

Fjölskylduhagir & foreldrar:  
Einstæður. Guðrún Petra Ólafsdóttir er mamma mín og Jóhannes Kristinsson er faðir minn

Búseta:
Reykjavík eins og er en til stendur að flytjast í Hafnarfjörðinn

 

Atvinna:
Er að vinna hjá stórfyrirtækinu Bílaraf  ehf.

 

Áhugamál:
Alls kyns íþróttir og líkamsrækt

 

Staða á vellinum:
Bakvörður

 

Hæð:
190cm

 

Ferill:
Alla tíð spilað í Eyjum fyrst með Tý svo ÍV og loks ÍBV

Markmið í lífinu:
Að hafa það sem best og halda heilsu sem lengst…

 

Mottó:
Always look on the bright side….

 

Minnistæðasti leikur:
Veit það eiginlega ekki en ætli það hafi ekki verið þegar við unnum eitthvað lið í Varmahlíð og komumst uppí 1.deild í fyrsta skiptið. Það var spennandi leikur sem vannst á síðustu sek.

 

Erfiðasti andstæðingurinn:
Enginn sérstakur

 

Hver er grófastur í liðinu:
Góð spurning…..

 

Besti körfuknattleiksmaður fyrr og síðar:
Michael Jordan

 

Besti körfuknattleiksmaður sem Ísland hefur alið af sér:
Teitur Örlygsson var svakalega góður á sínum tíma

 

Uppáhaldslið:
Njarðvík, Chicago Bulls, Manchester United og auðvitað ÍBV

 

Er framtíðin björt í körfuboltanum í Vetur:
Já ég get ekki sagt annað en að framtíðin sé skínandi björt miðað við þann árangur sem yngri flokkarnir eru að sýna. Það er bara um að gera að halda rétt á spilunum þannig að þessi uppbygging skili sér.

 

Hvernig líst þér á liðið í vetur:  
Mjög vel, ef hópurinn helst svona eins og hann er núna þá erum við með fína breidd og ættum að komast í úrslitakeppnina og spjar okkur fínt þar.

 

Í hvaða sæti mun ÍBV enda í vetur ?
Topp 5 er raunhæft markmið og við ættum að geta náð því.

 

 

 

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.