Malbikunarstöð Vestmannaeyja lokað næsta sumar

Á síðasta fundi Umhverfis- og framkvæmdasviðs var ákveðið að loka malbikunarstöðinni á næsta ári og verður líklega síðasta malbikið keyrt úr stöðinni í byrjun næsta sumars.

Á fundinum voru lagðar fram tillögur vinnuhóps um framtíðarhorfur malbikunarstöðvarinnar og voru tillögur hópsins þessar:

– Vinnuhópurinn telur ekki forsendur fyrir kaupum á nýrri malbikunarstöð m.v. fyrirliggjandi upplýsingar um stofnkostnað o.fl..

– Vinnuhópur telur ekki skynsamlegt að fara í stórfelldar viðgerðir á vélbúnaði og aðstöðu í núverandi malbikunarstöð. Miðað verði við að unnið verði í stöðinni í nokkra daga haustið 2007 og aftur fyrri hluta næsta sumars og henni verði lokað eftir þá malbikun.

– Fyrir smáviðgerðir og smá-útlagningar verði keypt tilbúið sérstakt malbik frá malbikunarstöðvum á höfuðborgarsvæðinu og það flutt sjóleiðis til Eyja.

– Leitað verði eftir tilboðum vegna framleiðslu á malbiki með færanlegri malbikunarstöð, en tvær slíkar stöðvar eru hér á landi. Leitað verði eftir samstarfi við Vegagerðina um að fara í verulegt átak varðandi malbiksyfirlög á þjóðvegum í Eyjum og Vestmannaeyjabær fari á sama tíma í lagningu yfirlags á nokkrum götum í gatnakerfi bæjarins.

Framkvæmdastjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs falið að taka upp formlegar viðræður við forráðamenn Vegagerðarinnar um samstarf vegna átaks í lagningu malbiks á götum í Eyjum og stefna að því að þessar malbikunarframkvæmdir eigi sér stað eigi síðar en sumarið 2009.

 

 

Nýjustu fréttir

Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka
Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum
Fólkið okkar og framtíðin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.