Vill afnema veiðigjald af útgerðum

Elliði Vignisson í Vestmannaeyjum vill afnema veiðileyfagjald af útgerðum. Sjávarútvegsfyrirtæki í Vestmannaeyjum greiða um 120 milljónir á ári í veiðileyfagjald. Hann segir það ekki rétt af ríkisstjórninni að lofa einhverjum mótvægisaðgerðum og innheimta á sama tíma sértækan skatt af sjávarútvegsfyrirtækjum.

Elliði segir að hagkerfi Vestmannaeyja verði fyrir 3,6 milljarða króna tapi vegna niðurskurðar á þorskvóta.

Mótvægisaðgerðir ríkissjórnarinnar skili sveitarfélaginu á milli 40 og 50 milljónum króna. Elliði segist ánægður með mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar eins og þau snúa að sveitarfélaginu og telur þær vita á gott.

Nýjustu fréttir

Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.