Karlalið ÍBV átti að leika á morgun, laugardag mikilvægan leik í 1. deild handboltans þegar Víkingar koma í heimsókn. Leikurinn átti að hefjast klukkan 13.30 en hálftímaáður, eða klukkan 13.00 leikur íslenska karlalandsliðið í handbolta í undanúrslitum EM gegn Frökkum. Af þessum sökum hefur leik ÍBV verið frestað til klukkan 15:15 sama dag.