Landsþing Frjálslynda flokksins fór fram um helgina í Reykjavík en á þinginu var m.a. skipt um formann en Guðjón Arnar Kristjánsson vék til hliðar. Sigurjón Þórðarson, fyrrum þingmaður flokksins tekur við sem formaður en einn Eyjamaður er í miðstjórn flokksins. Georg Eiður Arnarson tekur sæti í miðstjórninni en Hanna Birna Jóhannsdóttir, sem hefur verið ritari flokksins, gaf ekki kost á sér.