Á vef Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is hefur síðasta árið eða svo verið teljari sem telur niður þangað til siglingar í Landeyjahöfn hefjast. Miðað er við að siglingar hefjist 1. júlí næstkomandi en í hádeginu í dag fór teljarinn niður fyrir 100 daga markið. Nú eru því innan við 100 dagar í að siglingar hefjist og hver dagur væntanlega mikilvægur við framkvæmdina.