Karlalið ÍBV sækir í dag Stjörnuna heim í Garðabæinn en leikur liðanna hefst klukkan 16.00. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin klukkan 15:45. ÍBV er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig, jafn mörg stig og Breiðablik sem er í öðru sæti en með betri markatölu. Efstir eru Keflvíkingar með 18 stig. Stjarnan er svo í 7. sæti með 13 stig.