Bílastæðin við Landeyjahöfn full
Nú eru öll þau 2000 bílastæði, sem búið var að útbúa í Landeyahöfn, orðin full. Eimskip segir, að ferðalangar, sem ekki eigi bókaða ferð fyrir bílinn sinn með til Eyja, verði að leita annara ráða. Í tilkynningu frá Eimskip segir Ólafur Hand, markaðsstjóri félagsins að fjöldinn sem sæki Vestmannaeyjar heim á þjóðhátíð sé búinn að slá öll met. Hann bendir fólki á að nýta sér áætlunarferðir Sterna, sem sér um akstur milli höfuðborgarinnar og Landeyja. Upplýsingar um þær ferðir má fá á www.sterna.is.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.