Eyjamenn taka á móti sjálfum Íslandsmeisturum FH á Hásteinsvellinum í kvöld í alvöru toppslag Pepsí-deildarinnar en ÍBV er á toppnum ásamt Breiðabliki og FH í því þriðja. Þó munar heilum sjö stigum á liðunum tveimur en ef FH-ingar ætla að blanda sér í toppbaráttuna, þá kemur ekkert til greina hjá þeim nema sigur. Í raun og veru eru næstu tveir leikir Íslandsmeistaranna þeir mikilvægustu því í næstu umferð leika þeir svo gegn hinu toppliðinu, Breiðabliki í Hafnarfirði.