Ungur maður sem var gestur á þjóðhátíð slasaðist illa þegar sprengja sprakk við fætur hans. Frá þessu er greint á Pressunni.is en svo virðist sem einhverskonar glersprengju hafi verið kastað inn í stóran hóp fólks fyrir framan stóra sviðið aðfaranótt mánudagsins sem svo sprakk við fætur Hauks Hólm Ármannssonar. Haukur missti heyrnina tímabundið, fékk glerbrot í kálfann og missti mikið blóð. Þótt Haukur hafi slasast alvarlega er ljóst að mun verr hefði getað farið, t.d. ef börn hefðu verið nálægt.