FH-ingar unnu sanngjarnan sigur á ÍBV í kvöld, 1:3 en leikurinn fór fram á heimavelli ÍBV. Hásteinsvöllur hefur það sem af er sumars verið mikil gryfja, Eyjamenn hafa ekki tapað þar leik og aðeins fengið á sig þrjú mörk í sex leikjum þegar kom að leiknum gegn FH. En Íslandsmeistararnir sýndu allar sínar bestu hliðar í kvöld og hefðu í raun og veru getað skorað fleiri mörk.