Íbúar Vestmannaeyjabæjar eru afar stoltir af bænum sínum og náttúru Eyjanna. Margir telja að ekki sé til fallegri bær á landinu og hvergi sé betra að búa. Það getur því verið ákaflega gott að fá staðfestingu á því frá gestum Eyjanna, en bæjarstjórn Vestmannaeyja barst fyrir stuttu póstur þar sem Vestmannaeyjar eru dásamaðar í bak og fyrir. Bréfið má lesa hér að neðan.