Samkvæmt hlustundartölum Capacent um Verslunarmannahelgina, hlustuðu fimmtíu þúsund manns á útsendingu kvölddagskrár þjóðhátíðarinnar á sunnudaginn. Hápunktur útsendingarinnar var að sjálfsögðu hinn árlegi brekkusöngur en útsendingin stóð frá 21:00 til 01:00. Um 22% þjóðarinnar á aldrinum 12 til 80 ára stilltu á einhverjum tímapunkti á útsendinguna. Þetta er jafnframt sá dagskrárliður í útvarpi í síðustu viku sem mest var hlustað á.