Kvennalið ÍBV fór illa með Hött frá Egilstöðum þegar liðin mættust í B-riðli 1. deildar í gær. Leikurinn fór fram á Hásteinsvelli en lokatölur urðu 11:0 fyrir ÍBV. Edda María Birgisdóttir, sem gekk nýverið í raðir ÍBV skoraði fjögur mörk í leiknum en hin unga og efnilega Svava Tara Ólafsdóttir skoraði tvö, eins og hin suður afríska Antonia Robertha Carelse.