Þeir eru ýmsir möguleikarnir sem opnast með tilkomu Landeyjahafnar. Í síðustu viku mætti minkabóndi úr Þykkvabænum í loðnubræðslu Vinnslustöðvarinnar og keypti þrjú tonn af lýsi. „Hann hafði áður keypt lýsi á Akranesi en nú er styttra fyrir hann að koma út í Eyjar,“ sagði Sigurður Friðbjörnsson, verksmiðjustjóri.