Gróska á flestum sviðum - Vandamálið er skrýtin ríkisstjórn
Annars má segja að flest hafi gengið okkur Eyjamönnum í haginn á árinu. Veðrið í sumar hefur verið frábært og stærsta þjóðhátíðin til þessa heppnaðist fantavel. Þar komu margir að verki sem unnu frábært starf. Afraksturinn verður undirstaðan undir rekstri ÍBV-íþróttafélags næsta árið sem nú horfir upp á bjartari tíð með lækkun ferðakostnaðar með tilkomu Landeyjahafnar. Hefur hann löngum verið íþróttastarfi í Eyjum þungur í skauti en nú er það að breytast. Þá má ekki gleyma að stelpurnar í fótboltanum eru komnar í umspil um sæti í efstu deild og strákarnir okkar eru í toppbaráttunni. Eitthvað sem enginn reiknaði með í upphafi leiktíðar.