Nú er hafið handboltamót í kvennahandbolta í Eyjum en þar mætast ÍBV, Fram, HK og Haukar. Fyrsti leikur mótsins var í gær þegar ÍBV tók á móti Fram en Eyjastúlkur leika á ný í úrvalsdeild næsta vetur. Leiknum var skipt upp í tvo hálftíma leiki og höfðu Framarar mikla yfirburði í fyrri leiknum og unnu hann 8:19. Seinni leikinn unnu Eyjastúlkur hins vegar 16:14. Mótið heldur svo áfram í kvöld þegar ÍBV mætir Haukum klukkan 18:00.