Í Fiskifréttum sem komu út í gær er farið yfir útlutun á kvóta í þorskígildistonnum á hverja útgerð fyrir sig. Tekin er saman úthlutun til 25 kvóthæstu útgerðanna og eru fjórar þeirra í Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin hf. er í 9. sæti listans með 3,24% af heildarkvótanum eða 8.761 þorskígildistonn. Til samanburðar þá var VSV í 8. sæti á listanum í fyrra, með 3,94% af heildarúthlutuninni eða 10.241 tonn.