Í dag, klukkan 12:30 fer fram úrslitaleikur í 1. deild kvenna en þar mætast ÍBV og Þróttur. Bæði lið eru örugg með sæti í úrvalsdeild næsta sumar og því aðeins leikið um sigurverðlaunin í 1. deild. Leikurinn fer fram á Þorlákshafnarvelli og rétt að skora á alla þá Eyjamenn sem eiga möguleika á, að fara í sunnudagsbíltúr til Þorlákshafnar og styðja sitt lið.