Hinn 7. apríl sl. birtist í Fréttum opið bréf til undirritaðs. Þar var óskað skýringa á því hvers vegna PH Viking og Ribsfari mega sigla um Eyjar með farþega en ekki til Landeyjahafnar. Hvers vegna Landeyjahöfn er lokuð öðrum skipum en Herjólfi og hvort Skandia sé nógu vel útbúin til að dýpka. Það eru aðrir betur til þess fallnir að svara fyrri tveimur liðunum en undirritaður en mun þó svara þessu eftir bestu getu.