Aðfaranótt skírdags 21 apríl s.l. var gerður aðsúgur að lögreglumönnum er voru við skyldustörf í Vestmannaeyjabæ. Var þar um að ræða ungmenni er voru fyrir utan skemmtistaðinn Prófastinn í Vestmannaeyjum en þar fór fram dansleikur á vegum Framhaldsskóla Vestmannaeyja. Hugðust lögreglumennirnir taka áfengi af 16 ára unglingi er ólæti byrjuðu.