Grunnskóli Vestmannaeyja var settur á þriðjudag og kennsla í skólanum hófst daginn eftir. Nemendafjöldi stendur nú í stað sem er ánægjulegt þar sem nemendum hefur fækkað undanfarin ár. „Nú eru 582 nemendur skráðir í skólann sem er nokkurn veginn sama tala og í fyrra en frá því ég kom að skólanum árið 2006 hefur nemendum fækkað. Um 80 nemendur verið útskrifaðir frá skólanum en um 50 nýir nemendur komið inn sem þýðir fækkun um þrjátíu nemendur á ári,“ sagði Fanney Ásgeirsdóttir skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja þegar hún var spurð út í skólastarfið sem er að hefjast.