Bæjarráð leggst alfarið gegn 15 prósent hækkun á gjaldskrá Herjólfs
4. október, 2011
Bæjarráð leggst alfarið gegn fyrirhugaðri 15 prósent hækkun á gjaldskrá Herjólfs og hvetur Vegagerðina til að leggja höfuðáherslu á að sinna skyldu sinni hvað varðar að tryggja viðunandi þjónustu í siglingum milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Hækkunin á að taka gildi frá og með 1. nóvember næstkomandi samkvæmt tilkynningu Vegagerðarinnar.