Það er orðinn árlegur þáttur í fermingarfræðslu Landakirkju að fermingarbörnin standa fyrir söfnun á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta verkefni er kallað vatnsverkefni fermingarbarna því safnað er fyrir vatnsbrunnum fyrir grunnvatn og söfnunartönkum fyrir rigningarvatn. Víða er mikill skortur á hreinu vatni en það hefur valdið sjúkdómum og lakri heilsu milljóna manna.