Ekkert bendir til þess að árásin hafi átt sér stað á Hásteinsvegi
Við rannsókn lögreglunnar í Vestmanneyjum á meintri árás tveggja erlendra karlmanna á stúlku um tvítugt á Hásteinsvegi að morgni sunnudagsins 6. nóvember sl. hefur komið í ljós að þessi árás á ekki við rök að styðjast. Ekkert bendir til þess að árásin hafi átt sér stað á Hásteinsvegi né að þarna hafi verið um að ræða tvo erlenda karlmenn.