Nú liggja fyrir niðurstöður samræmdra könnunarprófa í fjórða, sjöunda og tíunda bekk grunnskólanna haustið 2011. Nemendur í fjórðu og sjöundu bekkjum Grunnskóla Vestmannaeyja (GRV) koma ágætlega út en í tíunda bekk er meðaleinkunn nemenda undir landsmeðaltali í öllum greinum. Þetta upplýsti Fanney Ásgeirsdóttir, skólastjóri GRV. Nemendur fjórða bekkjar GRV eru fyrir ofan landsmeðaltal í íslensku, með meðaleinkunnina 6,5, landsmeðaltal er 6,3.