Íslendingar eru duglegir að bera sig saman við vestrænar þjóðir í hæfni og gæðum þjónustu og menntunar. Við segjum stolt frá því að við teljum okkur vera á pari við Norðurlandaþjóðirnar með að virða réttindi og þjónusta þegna landsins. Að fenginni faglegri og persónulegri reynslu finn ég mig knúinn til að leggja mitt mat á stöðu þeirrar þjónustu sem veitt er við sjómenn og sjúklinga utan höfuðborgarinnar.