Herjólfur mun sigla áfram til Þorlákshafnar um helgina, frá og með föstudeginum 11. nóvember og út sunnudaginn 13. nóvember. Brottför verður samkvæmt áætlun, frá Eyjum klukkan 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn 11:45 og 19:15. Ástæðan er bæði slæm ölduspá og einnig er dýpi í Landeyjahöfn ekki talið nægjanlegt. Mælingamenn urðu frá að hverfa vegna sjólags og ölduhæðar í innsiglingunn, eftir því sem kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.