Sjálfvirkir mælar Veðurstofu Íslands sýndu 19 gráðu hita og 30 m/sek á Stórhöfða í Vestmannaeyjum í dag. Að sögn veðurfræðings á vakt er ekki um neina hitabylgju að ræða þar sem bilun virðist hafa komið upp í sjálfvirkum mælum Veðurstofunnar. Þetta kemur fram á Mbl.is.