Umhverfisstofnun hefur fallið frá dagsektum, sem lagðar höfðu verið á Sorporkustöð Vestmannaeyja frá 6. júlí sl. Þetta kom fram á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í gærdag. Er þetta gert í framhaldi af niðurstöðum mælinga vegna ryks frá útblæstri stöðvarinnar, sem reyndust eftir allt ekki eins slæmar og stofnunin sagði.