Kári Kristján Kristjánsson var sterkur í leik Wetzlar gegn meistaraefnunum í Kiel sem Alfreð Gíslason stýrir. Kiel hafði betur 24:28, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik 11:13 en Kári stóð heldur betur fyrir sínu, var markahæstur í liði Wetzlar með fimm mörk. Kári var einnig markahæstur gegn öðru toppliði á dögunum, Rhein-Neckar Löwen, sem einmitt landsliðsþjálfarinn Guðmundur Þórður Guðmundsson stýrir.