Fyrirliði ÍBV í kvennaknattspyrnunni síðustu ár, Þórhildur Ólafsdóttir, er gengin í raðir Þórs/KA. Hún skrifaði undir hjá Akureyrarliðinu í dag en Þórhildur var talsvert mikið frá vegna meiðsla síðasta sumar en náði þó að leika 13 leiki og skora í þeim eitt mark. Þórhildur meiddist einmitt í leik gegn Þór/KA á Hásteinsvellinum. Þórhildur hefur verið leiðtogi liðsins og brotthvarf hennar mikið áfall fyrir Eyjaliðið.