Eyjamenn höfðu betur í uppgjöri Suðurlandsliðanna tveggja ÍBV og Selfoss í 1. deild karla en liðið mættust í Eyjum í dag. Liðin höfðu mæst á Selfossi í haust en þá unnu Eyjamenn með þrettán mörkum. Leikurinn í dag var hins vegar ekki nærri eins auðveldur fyrir ÍBV, sem hafði sigur að lokum eftir jafnan og harðan leik. Lokatölur urðu 35:32 eftir að Selfoss hafði verið 14:16 yfir í hálfleik.