Anna María Halldórsdóttir,tók þátt í Evrópumóti WBFF í líkamsrækt á dögunum. Anna María hefur átt við veikindi að stríða síðustu ár en hún notar líkamsræktina til að halda sér gangandi. Sigurinn í Female Díva Bikini Model flokki, þriðja sæti í Female Díva Fitness model flokki keppninnar og Pro Card kom Önnu Maríu mjög á óvart enda ekki nema 10 mánuðir síðan hún var á Reykjalundi þar sem hún gat varla gengið fyrir bakverkjum.