Tími á að prófa eitthvað nýtt
Fyrirliði ÍBV í kvennaknattspyrn­unni síðustu ár, Þórhildur Ólafsdóttir, er gengin í raðir Þórs/KA. Hún skrifaði undir tveggja ára samning hjá Akur­eyrar­liðinu í síðustu viku en Þórhildur var talsvert mikið frá vegna meiðsla síðasta sumar. Hún náði þó að leika 13 leiki og skora í þeim eitt mark en Þórhildur meiddist einmitt í heimaleik gegn Þór/KA. Alls hefur Þórhildur leikið 62 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 34 mörk en þessi sókndjarfi miðjumaður hefur verið leiðtogi Eyjaliðsins og brotthvarf hennar mikið áfall fyrir ÍBV.

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.