Kveikt verður á jólatrénu á Stakkagerðistúni í dag, föstudag kl. 17.00 á Stakkagerðistúni. Þar mun Lúðrasveit Vestmannaeyja leika undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Ávarp flytur Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs, Stúlknakór Védísar mun syngja undir stjórn Védísar Guðmundsdóttur. Ronja ræningjadóttir tendrar ljós jólatrésins, helgistund verður í umsjón séra Kristjáns Björnssonar og félagar í Leikfélagi Vestmannaeyja og jólasveinarnir færa börnum góðgæti.