Klukkan sjö í morgun var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að nýju að húsinu Drífanda í miðbæ Vestmannaeyja en þar hafði eldur blossað upp að nýju. Eldur kviknaði í húsinu í nótt en slökkvistarf þá tók um klukkustund. Húsið var vaktað af lögreglu og slökkviliðsmönnum en allt tiltækt slökkvilið var kallað á ný á staðinn til að berjast við eldinn. Mikill reykur var þegar blaðamaður Eyjafrétta kom á staðinn og ljóst að húsið er mjög illa farið.