Atli Kristinsson, skytta í handknattleiksliði Selfoss hyggst kæra Davíð Þór Óskarsson, leikmann ÍBV fyrir líkamsárás. Þetta er haft eftir Atla á www.visir.is en aganefnd Handknattleikssambands Íslands komst að þeirri niðurstöðu að nefndin ætti ekki að dæma eftir myndbandsupptöku af atvikinu. Dómarapar leiksins missti af atvikinu þannig að Davíð Þór fékk enga refsingu í leiknum, né eftir leik.