Eins og áður hefur komið fram leikur kvennalið ÍBV gegn FH í undanúrslitum bikarkeppninnar í dag klukkan 18. Liðin eru átta ár frá því að ÍBV varð síðast bikarmeistari en 2004 hafði ÍBV betur gegn Haukum í Laugardalshöllinni 35:32 í stórskemmtilegum úrslitaleik. ÍBV var reyndar langbesta liðið þetta árið, vann allt og komst í undanúrslit í Áskorendakeppni Evrópu.