Fasteignagjöld felld niður hjá íbúum 70 ára og eldri
Á fundi bæjarráðs á mánudag var samþykkt að fella niður fasteignagjöld fyrir íbúa í Vestmannaeyjum 70 ára og eldri. Í fundargerð bæjarráðs kemur m.a. fram að sterkur staða bæjarsjóðs geri það að verkum að hægt sé að lækka álögur á eldri borgara með það fyrir augum að gera þeim kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði. Afslátturinn nær til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í og gildir þegar annað hjóna eða sambúðaraðili hefur náð 70 ára aldri.