„Ég segi allt gott, okkur líður ágætlega en þetta er merkileg reynsla,“ sagði Snorri í Betel þegar Fréttir slógu á þráðinn til hans en hann stendur í ströngu þessa dagana. Snorri hefur nú verið leystur tímabundið frá störfum sem kennari við Brekkuskóla vegna ummæla sem hann viðhafði á heimasíðu sinni um samkynhneigð. Mun Snorri því ekki kenna við skólann út þetta skólaár samkvæmt ákvörðun skólayfirvalda á Akureyri.