Varnarmaðurinn Sverrir Garðarsson er genginn til liðs við ÍBV og hefur þegar fengið leikheimild með sínu nýja félagi. Eyjamenn hafa ekki gefið út um samning við leikmanninn en þó fengið félagaskiptin staðfest hjá KSÍ. Hann hafði æft með liðinu í vikunni. Sverrir er með leikheimild og má spila með ÍBV þegar liðið mætir ÍR í Lengjubikar karla á sunnudaginn klukkan 14:00 í Egilshöll.